Augnayndi

Ég þreytist aldrei á að dáðst að  fallegu plöntunum  í fjölbreyttri flóru landsins okkar.    Á síðustu helgi fór ég út fyrir bæinn og sá þá þessa flottu Gleym mér ei breiðu.  Flóra landsins er sannkallað  augnayndi

 

Gleym mér ei

 

 

 

 

 

 

 

 

Steinsnar frá bænum vaxa svo burknar á smá grasblettum,  sem eru inná milli í  nokkru   stórgrýtissvæði.  Þeir eru ræktarlegir og alls ekki síðri en þessi sem reyndar skartar sínu fegursta í garði hér í nágrenninu.  

 

Burkni

 

Njótið helgarinnar og sumarsins öll sem eitt Smile


Óhugnaður

Verulega óhugguleg frétt.

Í bókinni Dagar Íslands sem er í samantekt Jónasar Ragnarssonar og ég kíki einstöku sinnum í kemur fram að  akkúrat þann  4. júlí  árið 1685 hafi  Halldór nokkur Finnbogason  verið brenndur á báli á Þingvöllum,  fyrir að snúa Faðirvoninu upp á andskotann. 

Þetta var síðasta galdrabrennan á Íslandi en ekki síðasta aftakan, sú var mun síðar eða  árið 1830 á Vatnsdalshólum í Húnavatnssýslu. (Vísindavefurinn).

Í dag eru aðrir tímar og við búandi í þróaðri,  upplýstari og siðmenntaðri veröld.  

Þó er  dauðarefsing enn  viðhöfð í einhverjum ríkjum  Bandaríkjanna, sem er aldeilis ótrúlegt að skuli vera í nútímanum hjá svo siðmenntaðri þjóð. 

 


mbl.is 20 hengdir í fjöldaaftöku í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frek og æðir um allt á ógnarhraða.

 

Lúpínubreiða

 

 

Lúpínubreiða.

 


Alltaf flottur þessi.

Kleifakallinn
Kleifakallinn,
Skilti

Smá hugleiðing.

Ég ætlaði alls ekki að blogga um dauða Michael Jackson, finnst aðrir hafa gert þessu ágætis skil.  En svo langaði mig allt í einu svo að tjá mig um þetta eftir að hafa lesið fjölmargar fréttir af andlátinu og öllu því sem fjallað hefur verið um í kjölfarið. Margt blöskrar manni en umfjöllunin er líklegast bara í takt við hans lifanda líf.

Fyrir mörgum árum síðan sá ég þátt sem var um  listamanninn, heimili hans Neverland og þó mest um ásakanir í hans garð um misnotkun á börnum, sem er sá svarti blettur sem fylgdi Michael Jackson síðustu árin, - verulega ógeðfellt.   Þessi þáttur var athyglisverður og mér fannst maðurinn hreinlega sérkennilegur í meira lagi og lífið virðist ekki hafa verið honum auðvelt.  Peningar og frægð  hafa verið drifkraftur alls í hans umhverfi sem barns.

Ég var ein af þeim  fjölda jarðarbúa sem hélt  uppá hann sem tónlistarmann á unglingsárum mínum enda reis stjarna hans hratt og hátt á þeim árum.

Þessi fallna stjarna var óumdeilanlega mikill listamaður og verk hans í mínum huga og fjölda annarra  merkilegt og ódauðlegt framlag til tónlistarsögunnar.  Núna eftir dauða hans eru ótal getgátur um hvað hafi orðið  honum að aldurtila.  "Hvíl í friði" eru orð sem munu líklega seint eiga við um Michael Jackson miðað við fárið allt hans líf.  Í þessari  frétt kemur fram að til standi að kryfja hann aftur, eins og hann hafi ekki nógu mikið verið undir hnífnum í lifanda lífi, þó að nú sé tilgangurinn vissulega  annar.....nei þetta var nú ljótt af mér.

Já Michael Jackson er á margan hátt fórnarlamb frægðarinnar - einstaklingur sem hefur líklega aldrei getað um frjálst höfuð strokið.  

 


Þátturinn Út og Suður á Ruv í kvöld.

Á sumrin horfi ég síst á sjónvarpið en í gær sá ég kynningu á þætti Gísla Einarssonar Út og Suður rúlla yfir skjáinn. Þar var kunnuglegt andlit, því horfði ég af athygli á kynninguna.   Í þættinum í kvöld sýnir Gísli af heimsóknum sínum til Bildudals og hvernig brottfluttir menn hafa komið í vinnuferðir til bæjarins til  að láta draum sinn rætast og vinna gömlum heimahögum  gagn.  Ég ætla því að hrofa á þáttinn og kynnast aðeins nánar hvernig uppbygging Skrímslasetursins þar í bæ hefur gengið.  Hér  má kynnast umfjöllunarefni þáttarins aðeins nánar.

Það er margt hægt að gera ef vilji er fyrir hendi það höfum við svo oft fengið að kynnast í samfélaginu og ég reikna með að þessi þáttur Gísla sýni fólki vel hverju samtakamáttur duglegs fólks fær áorkað.

Merkileg alveg þessi uppbygging Skrímslasetursins á Bíldudal, mæli með að fólk horfi á þáttinn.

 


Ég var heppnari en þessi kona.

Lenti nefnilega í "stórþvotti" í Tívolíinu hérna um árið.   Það var ekki smáfugl sem hafði dritað á jakkann minn heldur einhver af stærri gerðinni .  Hún benti a.m.k til þess skítaklessan sem  lak niður jakkann minn  að framan og út á aðra ermina.  Ég þakka forsjóninni ævinlega  fyrir að þetta lenti þó á jakkanum en ekki á höfðinu á mér W00t þetta vakti general hlátur og gerði ferðina bara eftirminnilegri. En ég vildi nú samt alls ekki upplifa svona aftur Sick
mbl.is Fékk máv í höfuðið á 100 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarið 2009

Sumarið 2009 er yfirskrift bæklings sem liggur víða frammi og kynnir afþreyingu á suðursvæði Vestfjarða.  Þarna er ýmislegt týnt til s.s áhugaverðir staðir, veitingastaðir, gisting, tjaldsvæði og fl.

Það sem vakti athygli mína eru hátíðir sumarið 2009 en þær eru:

Skjaldborg, hátið Íslenskra heimildamynda sem er nú um Hvítasunnuhelgina.

Sjómannadagshelgin Patreksfirði 4.-7. júní.

Sumarmarkaður Vestfjarða Patreksfirði alla laugardaga frá 6.júní - 29. ágúst kl. 13:00-17:00 en þessi markaður er í gömlu pakkhúsi hér á staðnum en fyrsti markaðsdagurinn var reyndar í gær 30.maí.

Hátíðin Bíldudals grænar 26. - 28. júní.

Unglingamót Héraðssambandsins Hrafnaflóka verður haldið  á Bíldudal  4. júlí.

Steinbítshátíð á Patreksfirði 10.- 12. júlí.

Tálknafjör á Tálknafirði 24. - 26. júlí.

Svartfugl gönguhátíð verður svo 24.-26. júlí.

Samkvæmt ofantöldu verður nóg um að vera hér á svæðinu í sumar en að auki er hér margt fallegt að sjá  og upplifa.  Ég hef ekki hugmynd um hver á heiðurinn af útgáfu þessa bæklings en framtakið er ágætt.

Mig langar hér að benda á slóð á skemmtilegt framtak sem ég frétti af fyrir skömmu og finnst alveg magnað.  Þetta er nýlegt fyrirtæki sem býður uppá siglingu hér um og vonandi vex það bara og dafnar því að t.d er sjóstöng vaxandi afþreying og ég tel möguleika svona fyrirtækis mikla sé horft til framtíðar.


48 klukkutíma á hlaupum.

Ef hugsað er út í þetta og vegalengdin borin saman við leiðir sem maður þekkir þá gerir maður sér betur grein fyrir hversu ofurmannlegt afrek þetta er í raun.

Eftir því sem ég best veit byrjaði Gunnlaugur ekki að hlaupa fyrir alvöru fyrr en á miðjum aldri sem sýnir og sannar að það er aldrei of seint að byrja, - þó að fólk haldi sig nú bara við brot af svona vegalengd.  Ekki á allra færi að fara með tærnar þar sem Gunnlaugur hefur hælana í þessum efnum.

Til hamingju með afrekið Gunnlaugur Smile


mbl.is Að berja sjálfan sig áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjuleg úrslit.

Stutt og síðbúið Eurovisionblogg.  Þetta eru flottir krakkar sem standa vel fyrir sínu sem frábært listafólk.  Vonandi að þeim vegni sem allra best á lífsleiðinni og að við fáum að njóta hæfileikanna áfram. 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.