Matar og menningarhátíð helgina 10.- 12. júlí.
5.7.2009 | 11:01
Það er nóg um að velja í bæjarhátíðum og allskonar uppákomum um allt land, flestar helgar í sumar. Gífurlega fjölbreytt og spennandi dagskrá. Á næstu helgi verður hátíðin Matur og menning haldin hér á Patreksfirði. Á dagskránni eru m.a mörg spennandi tónlistaratriði, en hér má sjá niðurröðun atriða í heild sinni.
Matur og menning í Vesturbyggð 2009, hátíð helgina 10.-12.júlí.
Föstudagur 10. júlí
Kl. 20.00 - 21.00
Tónleikar í Patreksfjarðarkirkju
Flutt verða veraldleg og trúarleg sönglög jafnt erlend sem íslensk. Flytjendur eru: Gísli Magnason, Anna Sigríður Helgadóttir, Kristín Erna Blöndal, Will Kwiatkowski, Örn Arnarson og Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Kl. 22.00
Tónleikar á Kaffi Sæla á Tálknafirði.
Tónlistarmaðurinn Toggi spilar og syngur ma. Lagið vinsæla ,,Þú komst við hjartað í mér". Ókeypis.
Laugardagur 11. júlí
Kl. 11.00 - 12.30.
Sjóstangveiði og sigling frá Patreksfirði.
Iceland Sailing.
Siglt um Patreksfjörðinn með Sæljóma BA-59.
Verð. 2500 per mann og 1250 13-16 ára og frítt yngri en 12 ára.
Kl. 13.00 -16.00
Sumarmarkaður Vestfjarða í Pakkhúsið Patreksfirði.
Dagskrá fyrir yngstu kynslóðina og markaðstemmning.
Kl. 16.00-17.00.
Tónleikar í Skjalborgarbíó á Patreksfirði.
Minningarstund í tali og tónum til heiðurs Steingrími Sigfússyni tónskáld og rithöfundi frá Patreksfirði. Steingrímur (f. 1919 - d. 1976). var organisti í Patreksfjarðprestakalli í 25 ár. Aðgangseyrir: 1.000,-
Kl. 18.00
Sjávarfangs- sælkeraveisla í Smiðjunni í
Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði.
Sætapantanir í síma 845-1224 ( María).
kl. 20.00
Tónleikar í Sjóræningjahúsinu.
Bjargræðiskvartettinn skemmtir sér og öðrum með glensi og grini. Miðaverð 1.000 kr.
Sunnudagur 12. júlí
Kl. 14.00
Messað í Patreksfjarðarkirkju.
Tónlistarveisla í kirkjunni.
Prestur: Séra Leifur Ragnar Jónsson.
Flytjendur tónlistar eru: Gísli Magnason, Will Kwiatkowski, Anna Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.