Matur frá friðlýstu landi.
1.4.2009 | 22:52
Ég gerði smá færlsu um daginn þar sem ég dásamaði þróunarverkefni í matartengdri ferðaþjónustu hér á Vestfjörðum sem fengið hefur nafnið "Veisla að Vestan" auðvitað bara brilliant hugmynd.
Á ferð minni í matvörubúð hér í bæ á dögunum rakst ég á skemmtilega nýjung í kælinum. Það var Vatnsfjarðar bleikjusmyrja sem er eins og nafnið bendir til paté, m.a gott ofan á kex, með smábrauðum og fl. Þessi nýja afurð er framleidd af aðila sem stundar fiskeldi í Vatnsfirði á Barðaströnd ekki langt frá Flókalundi. Þetta er eins og segir á loki pakkningarinnar "matur frá friðlýstu landi" en eins og flestir vita sem til þekkja er svæðið þarna í kringum Flókalund friðlýst. Hvort þetta telst partur af ofangreindu þróunarverkefni þekki ég ekki. Ég mæli óhikað með að fólk bragði á Vatnsfjarðar bleikjusmyrju - bragðgóð framleiðsla í handhægum og fallegum umbúðum. Ég óska þeim góðs gengis sem að þessu standa
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.