Ilmur af karrý og kókos

Það er fátt skemmtilegra en að borða góðan mat í góðra vina hópi.  Á borðinu m.a  matarmikil fiskisúpa, ólívur, pestó, ostar, gott  brauð og eðaldrykkur.  Spjall, hlátur, kertaljós,  tónlist eða bara fuglakvak og sjávarniður, allt eftir staðsetningu, aðstæðum og smekk.

Fiskisúpan:

1.l vatn

1 dl. hvítvín

lítill blaðlaukur - græni hlutinn

1-3 gulrætur

1 msk. tómatmauk

1 sellerístilkur

hvítlauksgeiri (ég nota 2)

1 tsk. Madras karrýduft

2 fiskiteningar

2 Maggý súputengingar

2 dl. rjómi

1 dós kókosmjólk

smjörbolla

humar, rækjur, hörpuskel, lax ýsa (þarf ekki allt af þessu)

1/2 rauð paprika í teningum og 1/ 2 búnt steinselja (smátt söxuð)

Grófsaxið grænmetið, steikt í smöri + karrý og tómatmauk.  Sett í pott með vatni, hvítvíni, teningum og hvítlauk.  Soðið í 15 mín.  Bæta í kókosmjólk, salti, pipar og rjóma.  Fiskurinn paprikan og steinseljan sett í og soðið í 2-3 mín.

 

Fiskisúpa


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 mmmmmm, þessi súpa getur ekki annað en verið góð, bara ekki annaði í boði.  Þessi uppskrift verður örugglega prófuð áður en langt um líður - fiskisúpur eru mjöööög ofarlega á uppáhaldsuppskriftalista mínum.

Takk fyrir að deila þessu með okkur.

Bestu kveðjur,

Sólveig.

Sólveig Ara (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband