Svona er þetta bara !
30.12.2008 | 13:08
Þetta er nákvæmlega það sem við Vestfirðingar búum við enn þann dag í dag, hálfri öld eftir að sæmilega ökufær vegur var gerður hér á milli Suður og Norðursvæðis. Svona frétt fær mér til að líða eins og fífli með síðustu færslu mína - að vera yfirleitt að halda og vona að jarðgöng verði að veruleika í nánustu framtíð !! En ég ætla mér samt ekki að hætta að trúa því að ástandið eigi eftir að breytast, þá er eins gott að setja tærnar uppí loft. Eins og ég hef margoft sagt þá hefur maður skilning á því að ekki sé verið að moka þegar hættuástand er og leiðinda veður í aðsigi en þegar það eru hlýindi og fyrirstaðan lítil þá er þetta illskiljanlegt. Mér var sagt að Orkubú Vestfjarða hefði látið opna Hrafnseyrarheiðina í gær, þeir hafa líklegast gert það á sinn kostnað.
Hætt þessu röfli í bili, - njótið dagsins
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.