Rafmagnsleysi
26.4.2010 | 22:00
heyrir nú næstum sögunni til að verði skyndilega á björtu vorkvöldi. Þó gerist það einstsöku sinnum enn þann dag í dag og akkúrat í kvöld gerðist það að rafmagn fór af í stilltu og fallegu veðrinu. Reyndar í frekar stuttan tíma. Veit svo sem ekkert hvað olli, orsakirnar fyrir útslætti eru ýmsar eins og lesa má um hér á vef Orkubús Vestfjarða þar sem t.d í eitt sinnið var að fugl, nánar tiltekið Hrafn sem flaug á, líklega einhverskonar víravirki með þeim afleiðingum að tilteknum línum sló út og blessaður Hrafninn lifði auðvitað ekki stundinni lengur.
Að hafa rafmagnið í lagi þykir manni svo sjálfsagður hlutur að það gætir stundum pirrings þegar það fer. Einstöku sinnum skemmir það tæki, sér í lagi ef það verður viðvarandi spennufall. Það er nú sem betur fer mjög sjaldgæft að ég held og yfirleitt að það verði teljandi óþægindi v/rafmangsleysis.
Þegar rafmagnið fór í kvöld hafði ég rétt lokið við að pikka inn heilmikinn texta hér í bloggfærslu en láðist að vista hann. Hann hvarf því algjörlega og því verður ekki af því að sú færsla birtist þar sem ég er ekki með hana á takteinum lengur. Þar minntist ég þó á að dag var mér færð óvænt og skemmtileg gjöf. Gjöfin er ljóðabókin "Kvöldganga með fuglum" eftir Matthías Johannessen. Á næstu dögum læðist reyndar formlega á mig hærri aldurstala samkvæmt þjóðskrá en gjöfin tengist þeim tímamótum ekki á nokkurn hátt þar sem viðkomandi var þegar búinn að gefa mér fyrirfram gjöf af því tilefni. (ég er nefnilega fordekruð alveg). Bókin hefur m.a að geyma ljóðið Frétt og það skrifa ég hér með inn í annað skiptið og vona að rafmagnið tolli á meðan.
Tjaldurinn er mættur,
nú mildast veður aftur
jafnvel maðkurinn hlakkar til
að sólin taki völdin
og veröldin hún breytist
og bregði lit á kvöldin
og vetrarskuggar flökti ekki
eins og feigðarnótt við þil,
nú hverfur allur kvíði
og kolsvört nóttin víkur
fyrir deginum og sólin
hún sér nú loksins aftur
handa sinna skil.
Og landið það er fagurt
með lauf sem fagnar því
að aprílgolur heilsa
með hvítum sólaryl
og lóan viðrar vængina
og vekur enn á ný
sitt vor með dírrindí,
nú kveikir blærinn aftur
sína kvíðalausu veröld
og vekur vatnamý
en það er líkt og lítið
langþráð spor
sé stígið inní útsaum guðs,
þetta yndislega vor.
Já fallegt ekki satt ? Hann er smekkmaður á gjafir hann sonur minn
Athugasemdir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2010 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.