Tónlistarveisla
7.4.2010 | 19:37
Eins og veðrið var nú brjálað hér í gær, það sást um tíma vart á milli húsa framan af degi, þá er dagurinn í dag algjör andstæða - alveg magnað þetta veðurfar á landinu bláa. Í dag er sem sagt sól og nánast logn, sá snjór sem kom í þessu skoti bráðnar hratt og vorið sest á ný að í hugum okkar og sál.
Nóg um veðrið.
Nú í apríl verður svo sannarlega tónlistarveisla hjá okkur hér á sunnanverðum Vestfjörðunum. Á laugardaginn kemur munu krakkar héðan keppa fyrir hönd Framhaldsskóla Snæfellsbæjar í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fer á Akureyri. Lagið sem þau flytja er frumsamið af Magna Smárasyni og textann samdi Una Hlín Sveinsdóttir sem jafnframt syngur lagið. Þau tvö ásamt krökkum úr hljómsveit héðan urðu hlutskörpust í vali á fulltrúum skólans í samkeppni sem haldin var í Grundarfirði fyrir skömmu. Að sjálfssögðu verður fylgst með sjónvarpinu á laugardaginn. Ég er verulega stolt af krökkunum og óska þeim að sjálfssögðu alls hins besta.
Laugardaginn 24. apríl verða tónleikar á vegum Karlakórsins Vestra í Félagsheimilinu hér á Patreksfirði. Það verður enginn annar en Kristján Jóhannsson stórsöngvari sem verður aðalnúmer tónleikanna. Fjölmargt verður á efnisskránni og t.a.m syngja Kristján og Mariola Kowalczyk dúett. Mariola er söngstjóri Karlakórsins Vestra og Kvennakórsins Bjarkanna en báðir kórarnir koma fram á tónleikunum. Það verður því svo sannarlega tónlistin sem setur svip sinn á aprílmánuð hér í bæjarfélaginu og nágrenni. Haldist veður gott er auðvitað vandalaust fyrir þá sem búa aðeins fjær að bregða undir sig betri fætinum og skjótast á flotta tónleika á Patró
Ítarlegar er sagt frá tónleikunum á www.patreksfjordur.is
Athugasemdir
Gaman að heyra þetta Anna mín. Aldeilis tónlistarveisla.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.4.2010 kl. 17:21
Takk Ásthildur, þetta puntar uppá lífið og tilveruna. Við bæjarbúar fylgjumst svo spennt með krökkunum í sjónvarpinu í kvöld
Anna, 10.4.2010 kl. 08:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.